Borgaryfirvöld í New Orleans í Bandaríkjunum afar heilir í hausnum. Þeir vilja nú gjörbreyta hinum vinsæla franska hluta borgarinnar úr því að vera djamm, djús og dásamlegheit í „fjölskylduvænan” áfangastað. Það þýðir einfaldlega skjótan dauða þess hverfis.

Drykkja, nekt og tónlist par exellans. Ekki mikið lengur í New Orleans

Borgarstjórn New Orleans sem og ríkisstjórn Louisiana-fylkis vestanhafs hyggst nú gera átak í að breyta franska hluta borgarinnar í fjölskylduvænan áfangastað og það þrátt fyrir að þeim fjölgi ár frá ári sem einmitt heimsækja þennan heimsfræga hluta borgarinnar sökum þess að hann er EKKI fjölskylduvænn.

Snarfækka skal börum og vafasömum knæpum, banna alfarið gegn háum sektum nekt hvers kyns á almannafæri og hvers kyns músíkantar þurfa sérstakt leyfi eftirleiðis til að blása í lúðra eða berja bumbur í hverfinu.

Með öðrum orðum; drepa allt það sem gerir franska hluta New Orleans framandi og skemmtilegan.

Ráð að drífa í að panta ferð núna og upplifa einhverja mögnuðustu stemmningu sem fyrirfinnst í Bandaríkjunum öllum í einu og sama hverfinu. Svona áður en franski hluti New Orleans verður eins og allir aðrir staðir í Bandaríkjunum. Eða á pari við Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum ef áfengisbann gilti þar alla helgina…