Enginn endir virðist vera á nýjungum í ferðabransanum. Nýjungum sem geta sparað ferðalöngum drjúgan skilding hafi fólk nennu til.

Er hægt að spara meira á hótelgistingu? Kannski og þessir aðilar finna út úr því.
Fyrir þá sem ekki til þekkja er samkeppnin í gistibransanum á heimsvísu orðin svo mikil að þar breytist verð nánast jafn ört og hjá flugfélögum. Einn daginn kostar flugið 20 þúsund en sólarhring síðar kostar sama flug 14 þúsund og svo viku seinna 28 þúsund. Verð rokka upp og niður án afláts þó raunin sé vissulega oftar sú að verð hækkar.
Í flugi snýst þetta um framboð og eftirspurn. Sé salan dræm er verð umsvifalaust lækkað. Sama staða er oftar en ekki hjá hótelum og gistihúsum. Sjái hótel á fimmtudegi fram á lélega herbergisnýtingu um næstu helgi er ekki óalgegnt að lækka verðið og það samstundis. Laust herbergi er tapaður peningur.
Nú hefur nýtt þýskt fyrirtæki tekið að sér að bjóða þá þjónustu að fylgjast með verðbreytingum fyrir þig og breyta bókun sjálfkrafa ef verðið lækkar áður en þú hefur förina. DreamCheaper.com heitir fyrirbærið og virkar þannig að þú stofnar þar reikning, skráir inn bókunarnúmer á því hóteli sem búið er að bóka og hefur svo engar áhyggjur af því frekar. DreamCheaper kannar nokkrum sinnum hvern einasta dag hvort herbergið sem þú bókaðir fæst á lægra verði en áður og bókar sjálfkrafa aftur á lægra verðinu.
Það er því verið að útiloka að ferðafólk greiði hærra verð fyrir gistingu en þarf. Það er fín þjónusta nú þegar verðbreytingar hótela eru jafn örar og raun ber vitni.
DreamCheaper tekur ekkert fyrir þjónustuna ef verð lækkar ekkert. Þeir hins vegar taka 20% þóknun af allri upphæð sem þeim tekst að spara fyrir þig. Bóki þeir herbergið þitt tíu þúsund krónum ódýrara en þegar þú bókaðir fyrst taka þeir tvö þúsund krónur og viðskiptavinurinn fær samt átta þúsund króna afslátt.
Fararheill mælir með þessari þjónustu af heilum hug og höfum þegar prófað með árangri. Vefur þeirra hér.







