Z urich í Sviss er stór borg og skemmtileg fyrir utan að vera fokdýr á fóðrum. Þangað er komist beint frá Íslandi. Komi upp sú staða þar í borg að sólarhringur er eftir af ferðinni og fátt að gera er margt vitlausara en taka stefnuna til Jungfraujoch.

Hverjum öðrum en Svisslendingum hefði dottið í hug að planta nýtísku lestarstöð efst á háu fjalli í Ölpunum?

Hverjum öðrum en Svisslendingum hefði dottið í hug að planta nýtísku lestarstöð efst á háu fjalli í Ölpunum?

Nú kunna einhverjir að spyrja hvað í ósköpunum það sé en svarið sést á meðfylgjandi mynd. Jungfraujoch er hæsta lestarstöð veraldar og lestarferð þangað upp þykir með þeim allra skemmtilegustu sem til eru í veröldinni. Fyrir utan auðvitað að hjartaáfall er vel mögulegt fyrir lofthrædda.

Frá Zurich er töluvert langur vegur til Jungfraujoch en þar sem vilji er fyrir hendi er allt hægt og ekkert er vesen.

Til að komast til og frá ef ferð er hafin frá Zurich tekur tíu klukkustundir plús klukkustund til eða frá til að slaka, eða ekki, á toppi Jungfraujoch fjalls. Það fjall er 3.471 metri og ofan á því er þessi hæsta lestarstöð heims. Útsýnið er eðlilega stórkostlegt að því gefnu að ekki sé skýjað sem reyndar er ansi oft í svissnesku Ölpunum. Til samanburðar er okkar eigin hæsti tindur á Hvannadalshnjúki 2.109 metrar.

Taka verður lest frá Zurich til Lúsern og frá Lúsern aðra lest til Interlaken sem er næsta fjallaborg við Jungfraujoch. Þaðan til bæjanna Grindenwald og áfram til Kleine Scheidegg og loks þaðan kemst ferðamaðurinn í Jungfraubahn sem flytur fólk upp samnefnt fjallið.

Ekki auðvelt og ekki ódýrt en eins og oft áður er mesta vesenið oft vel þess virði þegar á áfangastað er komið. Og ritstjórn Fararheill getur vottað að útsýni frá Jungfraujoch í glimrandi sólskini er bara til að deyja fyrir.

En auðvitað er líka bara hægt að fá sér bjór á barnum og slaka á svölunum eða skoða íshöllina þar sem hægt er að fá sér stíffrosinn kokteil ef sá gállinn er á fólki. Eða skoða frábæra jöklasýningu sem hér er sýnd reglulega.