
Srí Lanka ekki stór í neinu tilliti en maður minn hvað það er mikið að sjá og upplifa á þessari litlu eyju. Mynd World Bank
Auðvitað á engin lifandi sál að nýta sér örbrigð suðrænna þjóða til að njóta lífsins út í æsar. En við skiljum mætavel hvers vegna það er barasta æði vinsælt ár eftir ár. Tæland einhver? Mexíkó einhver?
Við erum jú langflest óánægð með okkar hlutskipti í annars farsælum vestrænum löndum samkvæmt fjölmörgum könnunum. Jafnvel tvær til þrjár ferðir til Kanaríeyja á ári hverju duga ekki til að vega mót þeirri andlegu hrörnun sem við flest dílum við þess utan í vinnu og einkalífi.
Víkur þá sögunni að Srí Lanka. Þessi ágæta litla eyja, sem aðeins er í 55 kílómetra fjarlægð frá Indlandi þaðan sem styst er, er bókstaflega á kafi. Bæði á kafi sökum hlýnunar jarðar en ekki síður vegna gjörspilltra stjórnmálamanna. Við hér að tala um Bjarna Ben og Sigmund Davíð sinnum fimm.
Srí Lanka hefur verið á barmi gjaldþrots um nokkurra mánaða skeið enda þurfa eyjaskeggjar þar, eins og við hér, að flytja inn langmest af helstu nauðsynjum og þegar gjörspilltir skítpésar ráða ríkjum árum saman og taka til sín fjármuni eins og ryksuga á spítti, vill gjarnan lítið verða eftir handa skitnum almúganum. Eða hversu dapur er fjárhagurinn orðinn þegar Seðlabanki Bangladesh veitir þér aðstoð. Bangladesh, fyrir þá sem ekki vita, land þar sem 90% allra íbúa lifa á undir EINUM DOLLAR á dag!
Þó Srí Lanka sé tiltölulega lítil eyja á heimsmælikvarða er hér að finna einhverjar merkilegustu dýrategundir heims og jafnframt, ennþá, einhverjar merkustu skógartegundir sem fyrirfinnast á plánetunni. Hvorki meira né minna en fjórar mismunandi tegundir hitabeltisskóga finnast á þessari agnarlitlu eyju.
Kannski er best að bera kostnað hér saman við Indland sjálft í næsta nágrenni. Ef þú ætlar til Indlands og vilt skipta þúsund kalli íslenskum færðu 40 PRÓSENT MINNA en ef þú skiptir íslenskum þúsundkalli í Srí Lanka rúpíur. Og hlutirnir eru almennt ódýrari á Srí Lanka en í Indlandi.
Það er eitthvað ekki satt?







