Þ að vita allir sem komnir eru til vits að bankar og fjármálastofnanir setja feit gjöld og aukakostnað á allt undir sólinni og verslanir og þjónustuaðilar vilja gjarnan fá sem mest fyrir sinn snúð líka. Þess vegna vekur furðu hversu margir láta fíflast og kjósa að greiða í íslenskum krónum á erlendri grund.

Þægindin við að þurfa ekki að nota höfuðið erlendis er hreint ekki ókeypis gott fólk.

Um hríð hefur verið í boði víða í Evrópu og Bandaríkjunum sú þjónusta verslana að bjóða ferðafólki að velja gjaldmiðilinn sem greiða skal með þegar kort er notað.

Það heillar marga þá sem féllu í stærðfræði í barnaskóla og treysta sér ekki til að reikna gróflega í hausnum hvað hlutur í verslun á Spáni til dæmis, kostar í íslenskum krónum. Bjóði verslun upp á svokallað DCC-greiðslukerfi þarf viðkomandi ekkert að nota heilann heldur aðeins að velja greiðslu í íslenskum krónum. Þá sést á augabragði að glansandi keramikvasinn sem kostar 273 evrur kostar nákvæmlega 34.300 krónur íslenskar.

Ahhhh. Þægindin maður minn! Við þurfum bara ekkert að hugsa lengur. Dásemdar heimur er þetta að verða.

En þó þú hafir ekki góðu sögu að segja af reiknihæfileikum þá er engin ástæða til að leggja ekki haus aðeins í bleyti. Eða heldur þú að það sé bara góð og ókeypis þjónusta að bjóða þér að greiða í þeim gjaldmiðli sem þú óskar?

Það aldeilis ekki ókeypis. Meðalþóknun verslana á Spáni svo dæmi sé tekið, við að bjóða þér að greiða í krónum en ekki evrum er sex prósent. Sem þýðir að keramikvasinn sem þú átt að greiða 273 evrur fyrir kostar í raun 289 evrur vegna þess að þú nenntir ekki að reikna í huganum. Þar aðeins miðað við sex prósenta þóknun sem er normið. Ekkert stoppar þó verslun, veitingastað eða hraðbanka í að hafa þóknunina hærri en það. Dæmi finnast um bankastofnanir sem leggja 100 prósent þóknun ofan á þegar óskað er eftir að greiða í öðrum gjaldmiðli en þeim sem gildir í viðkomandi landi.

Ágætt er líka að hafa í huga að þessi DCC-þóknun er í ofanálag við hefðbunda þóknun banka og kortafyrirtækja fyrir notin af kortum erlendis. Allt að þrjú prósent í viðbót við þetta bætast við þegar þú loks færð kortareikninginn mánuði síðar frá kortafyrirtækinu sjálfu. Svo ekki sé minnst á margra þúsunda króna árgjald fyrir að fá að nota kortin.

Ólíkt árgjaldinu og hefðbundinni kortaþóknun getur þú þó að minnsta kosti forðast DCC-gjaldið ef þú bara greiðir alltaf í gjaldmiðli þess lands sem þú ert staddur/stödd í. Annars er hætt við að spænski keramikvasinn verði dálítið langt frá því að vera góð kaup eins og þú hélst í upphafi …

PS: tókstu eftir að við plötuðum þig líka? 273 evrur eru ekki 34.300 krónur miðað við gengi dagsins. Þar erum við búin að bæta sex prósenta þóknun ofan á. Ef þú féllst fyrir því….