Þyngra en tárum taki að engin ferðaskrifstofa hafi áhuga að rífa landann til Tyrklands í beinu flugi. Þvílíkt sóknarfæri og nú er til staðar hefur ekki gefist um ár og raðir.

Strendur Antalya í Tyrklandi verið tómlegar um tveggja ára skeið með tilheyrandi verðlækkun fyrir þá gesti sem þó kíkja. Það mun breytast ört. Skjáskot
Fyrir nokkru létum við sænsku ferðaskrifstofuna Nazar heyra það fyrir að dúndra ekki aftur í gang þokkalega vinsælum beinum ferðum til Tyrklands frá Íslandi en þeim ferðum var alfarið hætt fyrir 2016 þegar blanda af hryðjuverkaógn og straumi flóttafólks frá Sýrlandi dró hratt og mikið úr ásókn ferðafólks á indælar tyrkneskar strendur. Svipað hrap þar og Egyptar urðu fyrir ári áður þegar hryðjuverkamenn grönduðu rússneskri farþegaþotu skammt frá Sharm el Sheikh. Aðsókn erlendra ferðamanna til beggja staða hrapaði nánast á augabragði um allt að 70 prósent.
Síðan hefur töluvert skólp runnið til sjávar. Hryðjuverkaógnin minnkað til muna nú þegar Ísis-liðar hafa fengið feitt á bauk og ein afleiðing þess sú að flóttafólk flýr nú ekki lengur Sýrland í eins stríðum straumum og áður.
Stærsti plúsinn við aðstæðurnar í Tyrklandi nú fyrir ferðaþyrsta bleiknefja er að samdrátturinn í ferðamennskunni í landinu hefur orðið til að gera hræódýrt land miklu ódýrara. Meðalkostnaður á hótelgistingu hefur lækkað um 30 prósent frá árinu 2016 og sömuleiðis er matur og drykkur á veitingastöðum á duglegum afsláttarkjörum. Heimamenn verða jú að gera það sem þarf til að halda lífi nú þegar fjöldi ferðamanna á vappinu er rétt rúmlega þriðjungur þess sem var þegar best lét.
Vísbendingar eru þó um að margir bíði átekta að fjölmenna á Tyrklandsstrendur eins og áður var. Nú síðast vikugömul könnun flug- og gistimiðilsins Momondo sem kannaði hjá Svíum, Dönum og Þjóðverjum hvaða sólarstaður væri að heilla flesta sumarið 2020. Upp úr dúrnum kom Antalya í Tyrklandi.
Miðað við þá niðurstöðu er það líklega aðeins í sumar sem njóta má hins ljúfa lífs í Tyrklandi á tombóluprís áður en strendurnar troðfyllast aftur og verðlag hækkar duglega með.







