O kkur dreymir sennilega öll um að ganga um göng ástarinnar einu sinni eða oftar á lífsleiðinni. Því eru það fantagóðar fréttir að þau göngin eru fundin.

Gömul járnbrautarleið hefur með góðri hjálp náttúrunnar breyst í glæsileg náttúrleg göng sem kallast göng ástarinnar af heimamönnum
Í ljós kemur að göng ástarinnar eru við smábæinn Klevan í Úkraínu af öllum stöðum. Úkraína per se hefur aldrei verið talin til rómantískustu landa en kannski það fari að breytast.
Göng ástarinnar er reyndar gælunafn heimamanna yfir náttúruleg göng sem myndast þegar gróður fer að taka við sér að sumarlagi við gamla járnbrautarleið við bæinn.
Af myndum að dæma er um dæmalaust fallegan stað að ræða sem stendur sannarlega undir titlinum göng en hvort ástin bankar frekar dyra hér en annars staðar hefur okkur vitandi ekki verið sannað.




