Þ ó stöku nektarstrendur sé víða að finna í heiminum eru þeir færri staðirnir nú til dags sem flokkast geta sem nektarnýlendur. Heilu bæirnir eða þorpin þar sem blátt bann er við fatnaði af öllum toga.

Nekt er fjarri því launingamál í Cap d´Agde í Frakklandi. Mynd Quintin Gloriaux

Nekt er fjarri því launingamál í Cap d´Agde í Frakklandi. Mynd Quintin Gloriaux

Það er þó enn raunin í Cap d´Agde við Miðjarðarhafsströnd Frakklands í um þriggja stunda fjarlægð frá Barcelona. Þar hefur nöktum tekist að viðhalda rúmlega 40 ára gamalli reglu um engan fatnað og kostulegt fyrir óvana að fylgjast með kviknöktu fólki á öllum aldri sinna bankaviðskiptum, kaupa í matinn og gera annað það sem fólk gerir dags daglega. Atlot para á ströndinni eru æði algeng líka fyrir allra augum og enginn blikkar auga.

Hluti bæjarins Cap d´Agde er lokaður af og kallast Village Naturiste og sá hluti eingöngu ætlaður þeim er kjósa að njóta lífsins með allt úti ef svo má að orði komast. Bærinn gjarnan kallaður Nakta borgin og hér er nekt tekin svo alvarlega að sérstakir gæslumenn gæta þess að klæddir valsi ekki hér um nema brýna nauðsyn beri til. Myndatökur hvers konar stranglega bannaðar og ósæmileg hegðun ekki liðin.

Sem hefur þó ekki komið í veg fyrir að óprúttnir hafi laumast inn á svæðið með myndavél eða tvær eins og sjá má á nokkrum fjölda mynda á samfélagsmiðlum ýmsum.