
Þorpið Sodeto í Huesca á Spáni komst í heimspressuna 2016 þegar hver einasti bæjarbúi nema einn unnu stóra vinninginn í spænska ríkislottóinu.
S toppaðu í einhverju smáþorpi utan alfaraleiða á Spáni og það eru meiri líkur en minni að heimamenn séu afundnir og fráhrindandi en annars er raunin. Allavega rífur sig enginn upp og býður í glas á barnum. Það eru þó aðeins meiri líkur á slíku í þorpinu Sodeto en annars staðar á Spáni. Þar búa nefninlega bara milljónamæringar.
Bærinn er svo lítill að hann er erfitt að finna á korti. Þar búa aðeins rétt rúmlega tvö hundruð manns og gera afskaplega lítið ef marka má rólegheitin í fáum götunum hvort sem er snemma morguns eða síðla kvölds.
Hér er einn lítill bar og einn lítill veitingastaður og þá er það upptalið sem hér er hægt að dunda því annað er ósköp hefðbundið miðað við Spán. Hér er meira að segja ekkert gamalt og merkilegt sökum þess að Sodeto er aðeins tæplega 60 ára gamalt þorp.
En það sem gerir Sodeto merkilegan er ekki bærinn sjálfur, umhverfið eða fólkið heldur sú staðreynd að hér eru allir bæjarbúar milljónamæringar. Eða öllu frekar voru það snemma árs 2016.
Þá nældu allir íbúar þorpsins nema einn sér í stærsta mögulegan vinning í spænska ríkislottóinu el Gordo. Allir í þorpinu nema einn áttu miða á sama númeri og hver og einn hér fékk í sinn hlut sextán milljónir króna.
Fararheill renndi hér í gegn í febrúar 2017 fyrir forvitnis sakir en ekki neitt benti til að þetta væri heppnasta þorp í heimi eins og fjölmiðlar kölluðu Sodeto í kjölfar lóttóvinningsins. Enginn var á þvælingi utandyra og aðeins einn á litla barnum. Sá bauð ekkert og var lítt upprifinn yfir aðkomufólki. En kannski var hann líka þessi eini sem gleymdi að kaupa miða.
View Sodeto á Spáni in a larger map




