A llir alvarlegir djammarar vita sem er að óvíða er meira stuð og stemmning um áramótin en í New York í Bandaríkjunum. Þar er líka hefðin meira sú að fara út að skemmta sér á Gamlárskvöld heldur en henda saman veislu heimavið.

Unga fólkið í New York sækir skemmtistaða grimmt um áramótin en það er ekki gefið.

Unga fólkið í New York sækir skemmtistaða grimmt um áramótin en það er ekki gefið.

Þess vegna bjóða allir helstu barir og skemmtistaðir borgarinnar upp á sérstök herlegheit þetta kvöld og er auðvelt að fá vatn í munn því langflestir hafa opinn bar þetta kvöld. Sem þýðir að djammarar greiða aðeins aðgangseyri en geta svo fengið sér ótakmarkað á barnum í ákveðinn tíma.

Þetta reyndar hljómar betur en það er í raun vegna þess að flestallir staðir sem slíkt bjóða eru svo pakkaðir að löng bið getur orðið eftir að komast á barinn eftir drykkjum.

Vefmiðillinn Joonbug hefur tekið saman helstu merkisstaði til að halda sig á þessu síðasta kvöldi ársins. Er þar hægt að finna ýmislegt kræsilegt en það kostar drjúgan skildinginn í mörgum stöðum.

Ódýrasta djammið virðist vera kringum tíu þúsund krónur og vilji menn súper aðstöðu, sérbás og þjónustu alla leið punga menn út verulega hærri upphæðum en það. Nánar hér.

Svo má auðvitað lækka kostnaðinn verulega með að nota heimsins bestu hótelleitarvél hér að neðan 😉