Tíðindi

Svo heitt að Brasilíumenn hlaupa í skjól

  20/01/2013No Comments

Hvort sem okkar líkar það betur eða verr þá er staðreyndin sú að Íslendingar almennt þola illa mikla hita. Við erum farin að fletta okkur klæðum hér heima strax um 20 gráðurnar  og mörgum líður ekki sem best undir heitri Spánarsól yfir sumartímann þó enginn viðurkenni svoleiðis aumingjaskap opinberlega.

Ein tólf hitamet voru slegin á ýmsum stöðum í New South Wales í Ástralíu fyrir helgina. Í slíku veðri er orka eða vilji til að hreyfa sig nánast engin,

En þó hitar í allra verstu tilfellum á Spáni geti rúllað í 36 til 40 gráður þá er það enn hjóm eitt miðað við hvað Ástralir og sérstaklega íbúar New South Wales hafa þurft að þola undanfarna daga.

Því væri hægt að lýsa á ýmsan hátt en það ætti að nægja að skoða meðfylgjandi hitamæli frá gærdeginum. Ritstjórn Fararheill prísar sig sæla fyrir að hafa ekki verið að dúllast við flugvöllinn í Sidney þar sem hitastig mældist hvorki meira né minna en 46,4 gráður.

Í þeim hita flýja meira að segja hitavanir Brasilíumenn beint í skuggann og helst í kaldar sundlaugar að því er dagblaðið Australian hefur eftir fararstjóra hóps ferðamanna frá því ágæta landi. Þann dag héldu þeir allir sig ofan í laug eða innandyra.