Tíðindi

Nauðlending þotu Icelandair enn til rannsóknar

  20/01/2013No Comments

Enn eru ekki öll kurl komin til grafar hvers vegna eitt hjóla Boeing þotu Icelandair féll af við flugtak frá Keflavíkurflugvelli í maí á síðasta ári. Rannsókn stendur enn yfir.

Þotan eftir giftursamlega lendingu í Keflavík með aðeins sjö hjól í aðalstelli en ekki átta. Rannsókn stendur enn yfir.

Þetta fær Fararheill staðfest hjá Rannsóknarnefnd flugslysa en atvikið sem varð þann 18. maí síðastliðinn var umsvifalaust flokkað af hálfu nefndarinnar sem alvarlegt flugatvik en um 200 manns voru um borð í vélinni þegar atvikið varð. Var mikill viðbúnaður í Keflavík þegar vélinni var snúið við skömmu eftir flugtak en lending gekk farsællega.

Þorkell Ágústsson, hjá Rannsóknarnefndinni, segir enn enga lokaniðurstöðu komna í málið þó um níu mánuðir hafi liðið síðan atvikið varð. Nefndin vinni áfram að rannsókninni en grein verði gerð fyrir gangi hennar í ársskýrslu nefndarinnar sem út komi fljótlega.