Væntanlega eru vandfundnir einstaklingar á Fróni sem finna mínus við flug hingað og þangað um heiminn niður í 6.200 krónur. EasyJet var að henda út einum 90 þúsund flugsætum á því ágæta verði.

Góð tilboð easyJet þessa stundina. Mynd Clement Alloione
Góðar fréttir fyrir ferðaþyrsta og kannski hina líka. Sex þúsund kall fyrir alvöru flug er lægra verð en það kostar að fljúga aðra leið til Vestmannaeyja frá Reykjavík á lágmarksverði. Og með fullri virðingu fyrir eyjaskeggjum eru borgir Evrópu örlítið skemmtilegri heimsóknar fyrir flesta innlendinga.
Alltaf er hængur á öllu og þar með töldum tilboðs fargjöldum easyJet. Til að njóta þessara fargjalda, sem gilda hingað og þangað um Evrópu fram til október, þurfa tveir einstaklingar að bóka saman. Einn einstaklingur þarf að greiða aðeins hærra gjald. Sem fyrr er enginn farangur innifalinn nema handfarangur.







