Maður hefði kannski haldið að ferðamálayfirvöld og flugfélög á Nýja-Sjálandi þyrftu ekki mikið að spreða í auglýsingar þessa síðustu og verstu enda kvikmyndirnar um Hobbitann og Hringadrottinssögu komið landinu betur á kortið en nokkur auglýsingaherferð.

Það þykir lítt móðins að láta hálfnaktar stúlkur á sætri ströndu kynna öryggisatriði í flugi. Skjáskot

Það þykir lítt móðins að láta hálfnaktar stúlkur á sætri ströndu kynna öryggisatriði í flugi. Skjáskot

En mikill vill meira og þess vegna ákvað stjórn Air New Zealand fyrir nokkru að láta úbúa nýtt öryggismyndband fyrir vélar sínar. Mönnum fannst sérstaklega tilvalið að fá velþekkt sundfatamódel til að kynna öryggisatriði um borð. Þar skjátlaðist þeim illilega.

Myndbandið, sem sjá má hér að neðan, hefur vakið upp hörð viðbrögð meðal baráttufólks fyrir jafnrétti kynjanna og kvenréttindakonum sem þykir helst gert lítið úr sínu fólki í myndbandinu. Þar hálfstríplast fallegar stúlkur um einhverjar fallegustu strendur heims og ítreka helstu öryggisatriði í flugi.

Myndbandið hreint ekki leiðinlegt á að horfa en kannski ekki alveg rétta leiðin til að koma áríðandi upplýsingum til farþega þegar og ef eitthvað bjátar á. Eða hvað finnst þér?