Mörg okkar skjótast erlendis fyrir jólavertíðina hvort sem er til að ná að draga andann án þess að taka þátt í geðveikinni hér heima eða til að versla jólagjafir á margfalt lægra verði en okkur býðst hér. Nema hvorugtveggja sé.
Mjög nett úttekt Fararheill á skemmri túrum til þriggja eðalfínna borga, sem bæði Icelandair og Wow Air bjóða beint flug til, leiðir í ljós að Wow Air er ekki aðeins að pakka þeirri gömlu sundur og saman heldur beinlínis steikja Icelandair á teini.
Þetta má glögglega sjá á þremur neðangreindum dæmum:

Flug fram og aftur til Parísar 25. nóvember til 3. desember. 83% verðmunur á sama flugi með það sama innifalið.

Flug fram og aftur til Amsterdam 9. – 15. desember. 96% verðmunur á sama pakka hjá flugfélögunum.

Fram og aftur til Torontó í Kanada 1.- 9. desember. Aðeins 85% verðmunur á sömu vörunni.
Öll ofangreind fargjöld miðast við ódýrasta farrými hjá báðum aðilum. Enginn farangur heimilaður annar en handfarangur.
Munurinn sláandi ekki satt?
Víst minnkar verðmunurinn á þessum sömu ferðum þurfi fólk að hafa farangur meðferðis en engu að síður er munurinn á milli 30 – 50 prósent. Það líka ægilegur verðmunur á sömu vörunni.
Og jú, svona áður en efasemdarmenn kvarta og kveina yfir óréttlátum samanburði þá ber að geta þess að Icelandair býður afþreyingarkerfi um borð og það flugfélag býður langtum betri þjónustu ef eitthvað bjátar á. Á móti kemur að rellur Wow Air eru mun sparneytnari og fara betur með heiminn okkar.
En þú veist eins og við hér að meginatriðið er verðlagningin. Og þar er Icelandair nánast í fjórðu deild en Wow Air í úrvalsdeild.
Góða ferð 😉







