Þ að mjög til marks um hnignandi blaðamennsku í landinu að forvitnileg frétt Morgunblaðsins um væringar hjá flugfélaginu Play skilur eftir miklu fleiri spurningar en svör.

Tæpum tveimur mánuðum eftir fyrsta flug Play eru uppsagnir í loftinu. Skjáskot

Hmmm! Hvar ættum við að byrja? Skoðum aðeins fréttina:

Flug­mönn­um og flugliðum flug­fé­lags­ins Play hef­ur verið boðið að taka á sig allt að 50% lækk­un á starfs­hlut­falli gegn því að fá fa­stráðningu í vet­ur en þessi hug­mynd var rædd á fjar­fundi sem stjórn­end­ur Play héldu með starfs­mönn­um fé­lags­ins á miðviku­dag sl. Heim­ild­ir Morg­un­blaðsins herma að hljóðið í flug­mönn­um sé þungt eft­ir fund­inn.

Hug­mynd­in að breyt­ing­un­um kom ekki frá stjórn­end­um, að sögn Birg­is Jóns­son­ar, for­stjóra Play. „Ég var nú reynd­ar ekki á fund­in­um sjálf­ur en það er mik­il­vægt að árétta að þessi hug­mynd kem­ur ekki frá stjórn­inni held­ur vakn­ar hún hjá hópn­um.“

Þá seg­ir hann starfs­menn ekki hafa verið til­neydda til að lækka starfs­hlut­fall sitt held­ur sé með þessu boði verið að reyna að tryggja að fleiri starfs­menn fái fa­stráðningu í vet­ur og forða þannig fólki frá því að lenda í at­vinnu­leysi.

Ýmsar spurningar vakna:

A) Flugmenn og flugþjónar vilja skoða að skerða eigið starfshlutfall. Samt er þungt í þeim hljóðið?

B) Vilja forða fólki frá atvinnuleysi TVEIMUR MÁNUÐUM eftir að flugfélagið hóf sig til lofts? Samt eru allir flugmenn fastráðnir og hluti flugþjóna líka. Vilja 36 fastráðnir flugmenn og -þjónar helminga starfshlutfall sitt og tekjur til að um 30 lausráðnir starfsmenn fái eitthvað gera í vetur? Hattur ofan fyrir því en langsótt mjög.

C) Vilja forða fólki frá atvinnuleysi en samt er Play að fá nýjar vélar og vertíðin í vetur framúrskarandi björt samkvæmt fregnum að undanförnu?

D) Hvers vegna er forstjórinn sjálfur ekki á stórum fundi þar sem framtíð starfsfólks er til umræðu?

E) Má þá kannski búast við að ferðum verði fækkað í vetur frá núverandi áætlun?

Hvað skal eiginlega halda? Sala farmiða hjá Play er líklega ekki jafn góð og af er látið ef lausráðið starfsfólk er sent út á guð og gaddinn fimm mínútum eftir fyrsta flugið…