Ferjufélagið Smyrilline sem rekur ferjuna Norrænu auglýsir grimmt þessi dægrin það sem fólk þar á bæ kallar stórlækkað verð á ferðum til Færeyja og Danmerkur í vor, sumar og haust. Stórlækkað verð er vitaskuld teygjanlegt en túrinn fyrir fjögurra manna fjölskyldu á lágannatíma í inniklefa árið 2013 kostar 65 prósent meira en sami túr fyrir sömu fjöldskyldu með sama bíl árið 2009.

Verðlækkun er rangyrði mikið hjá forsvarsmönnum Norrænu. Mynd E.Anders

Verðlækkun er rangyrði mikið hjá forsvarsmönnum Norrænu. Mynd E.Anders

Fararheill hefur áður gagnrýnt mikinn kostnað við ferðalög með Norrænu en þar er vitaskuld verið að bera kostnaðinn saman við verð á flugi til Færeyja og Danmerkur síðustu árin. Hafi ekki verið brýn þörf að taka bíl eða hjólhýsi með hefur ferð með Norrænu engan veginn staðist samanburð við flugfargjöld að teknu tilliti til tímans og stundum ónotanna sem fylgir því að veltast um á rúmsjó í nokkra sólarhringa.

Árið 2009 kostaði inniklefi fyrir fjögurra manna fjölskyldu, þar af tvö börn að ellefu ára aldri, með venjulegan lítinn fjölskyldubíl meðferðis 88 þúsund krónur að fara frá Íslandi til Danmerkur utan annatíma. Nú auglýsir fyrirtækið sams konar rúnt nema kostnaðurinn er nú 145 þúsund krónur.

Ritstjórn Fararheill skal hundur heita ef það getur flokkast undir stórlækkað verð. Nema forsvarsmenn fyrirtækisins séu að miða við eitthvað allt annað.