Alltaf skulu stórfyrirtæki ota sínum tota þegar vel gengur einhvers staðar í samfélaginu. Þrátt fyrir að gera heil ósköp til að gera sama samfélag ívið verra en það gæti verið.

Icelandair enn að reyna að gerast óskabarn þjóðarinnar með yfirborðskenndum hætti.
Á fésbókarsíðu Icelandair hér til hliðar má sjá að fjórði júlí var stór dagur. Ekki bara vegna þess að hið stórgóða landslið okkar gerði stórþjóðum skráveifu eða tvær á Evrópumótinu í Frakklandi heldur líka fyrir Icelandair að því er fram kemur.
Ekki liggur ljóst fyrir hvers vegna dagurinn er stór fyrir Icelandair. Þeir fljúga jú 365 daga árs til og frá Frakklandi og ekkert nýtt við það.
En markaðsdeild Icelandair hefur séð ástæðu til að hengja gott gengi landsliðsins á sína eigin treyju í þeirri von að fyrirtækið komist kannski aftur á óskabarnalista landsmanna.
Nema þar liggja hundar grafnir. Þetta er jú sama fyrirtæki og hvers stjórnarformaður fékk sparkið frá Finnair fyrir spillingu. Þetta er jú sama fyrirtæki og hvers forstjóri berst á hnakka og hæl til að koma í veg fyrir almennilegar launahækkanir til handa Íslendingum. Þetta er jú sama fyrirtæki og fékk verulegar fjárhæðir í almenningsstyrki hér á árum áður. Þetta er jú sama fyrirtæki og tróð á landanum um áraraðir með einokun til hinna og þessa áfangastaða. Þetta er jú sama fyrirtæki og mengar einna mest evrópska flugfélaga. Þetta er jú sama fyrirtæki og hefur ítrekað brotið lög þegar kemur að því að kynna farþegum réttindi sín þegar eitthvað bjátar á. Þetta er jú sama fyrirtæki og heimtar himinháar fúlgur fyrir að flytja fólk milli staða innanlands. Þetta er jú sama fyrirtæki og lagðist þungt gegn því að tekið yrði upp komugjald á ferðafólk; komugjald sem telur í milljörðum króna og hefði gert að leik einum að byggja stíga, skilti, klósett og aðstöðu aðra víða um landið. Fyrir utan náttúrulega að krefjast morð fjár fyrir að flytja landann til Frakklands fyrir EM.
Nei, Icelandair. Þið eruð víðs fjarri því að geta sett ykkur á pall með íslenska landsliðinu. Víðs fjarri.







