Sala miða á stærstu tónlistarhátíð norðanverðrar Evrópu, Hróarskelduhátíðarinnar, hófst í vikunni og sem endranær mörg stór nöfn í hópi þeirra sem stíga á svið í sumar. En þó stjörnurnar heilli marga er það þó annað sem að okkar mati gerir þessa hátíð sérstaklega þess virði að sækja.
Það er sú staðreynd að hátíðin er ekki haldin í hagnaðarskyni. Þau samtök sem að baki henni standa gefa þann hluta ágóða sem eftir stendur þegar búið er að greiða listamönnum og öðrum þeim sem þörf er á til að halda hátíðina.
Eftir því sem við komumst næst er þetta eina stóra tónlistarhátíð heims þar sem málum er svo háttað. Annars staðar er ágóðanum bara stungið beint í vasann hjá frammámönnum.
Óvitlaust að hafa þetta bak við eyrað ef bóka á miða á tónleikahátíð. Snöggtum vænlegra að vita að hluti miðaverðs skilar sér til fátækra, blindra, mæðrahjálpar svo ekki sé minnst á Rauða Krossinn en að einhver frömuður fylli vasa sína.
Hróarskelduhátíðin er fyrirbæri sem allir undir fimmtugu ættu að prófa minnst einu sinni á lífsleiðinni. Þetta er nefninlega töluvert meira en bara tónlist.
Miðasala hér en miði á alla daga hátíðarinnar þetta árið kostar aðeins um 33 þúsund krónur og hefur ekki verið lægra um árabil. Það helgast vitaskuld af styrkingu krónunnar. Þrjátíu og þrjú þúsund kallar er vel sloppið fyrir 60 til 70 listamenn og þar á meðal Foo Fighters, Arcade Fire og Blink 182 svo fáir séu nefndir.
Og svona ef þér leiðist fátt verra en sofa í tjaldi er nóg af gististöðum öðrum í grennd eins og finna má hér að neðan.








