Iceland Express býður nú í einn sólarhring fimm þúsund flugsæti til fjögurra áfangastaða félagsins í Evrópu frá 8.692 krónum.
Nýta verður sætin í maí en tilboðið nær til borganna Kaupmannahafnar, Varsjár, London og Berlín.
Aðeins er þó um valdar dagsetningar að ræða og eins og virðist lenska hjá flugfélögum og ferðaskrifstofum íslenskum þarf að leita uppi tilboðsdagana.






