Tíðindi

Sofðu hjá okkur

  14/10/2010maí 31st, 2014No Comments

Allir markaðsfræðingar vita sem er að slæmt umtal er jafnan betra en ekkert umtal og jafnvel stundum betra en gott umtal.

Þetta hafa forsvarsmenn hótelkeðjunar First Hotels gripið á lofti og sett af stað nýja auglýsingaherferð sem mjög hefur farið fyrir brjóst á fólki. Svo mjög að fjölmiðlar víða um lönd hafa gert herferð þeirra að umfjöllunarefni.

Slagorð herferðar First Hotels er Sofðu hjá okkur, Sleep with us, og eins og meðfylgjandi auglýsing ber með sér má túlka það tilboð á hina ýmsu vegu.

Engum vafa er þó undirorpið að auglýsingar hótelsins hafa skilað sér mun víðar en hefðbundnar auglýsingar. Heimasíða First Hotels hér.