Eftir fréttum að dæma hefur eigandi Wow Air komist í tímabundið skjól eftir að flugfélagið blæddi peningum hraðar en holdsveikur maður líkamsvessa í Blóðbankanum. Væri ekki alveg kjörið að nota tækifærið til að sýna viðskiptavinum lipurð og kurteisi í framhaldinu?

Að passa eða ekki að passa. Það er spurningin.
Varla það ef marka má nokkrar umsagnir á samfélagsmiðlum síðustu dægrin.
Eitt skeyti sérstaklega vakti athygli okkar hér. Þar vill viðskiptavinur Wow Air fá formlega úr því skorið hvort lítil handtaska sem flugfélagið leyfir fólki að taka ókeypis með sér að því gefnu að taskan passi í þartilgert hólf við innritun á flugvöllum heimsins, standist reglurnar.
Kíktu með okkur á myndina hér til hliðar. Hvað sýnist þér? Er kvikindið að smellpassa í hólfið eða hvað? Við sjáum ekki betur en á því leiki ALLS ENGINN VAFI.
En kannski þurfum við hér ívið sterkari gleraugu. Því viðkomandi lenti í veseni og honum tjáð að taskan atarna PASSAÐI EKKI af starfsfólki Wow Air. Viðkomandi gert að greiða nokkur þúsund krónur í aukagjald fyrir að taka með töskudruslu sem virðist barasta passa fullkomlega.
Er þetta virkilega málið Skúli? Eru það næstu skref hjá Wow Air að nískast enn meira en verið hefur undanfarin misseri? Þú ert meðvitaður um að velflest önnur lággjaldaflugfélög sem fljúga til og frá Íslandi bjóða tíu kílóa tösku frítt með. Og þú ætlar að pönkast á þeim sem halda á tveggja kílóa fartölvutösku sem passa fínt í boxið þitt?
Eitthvað segir okkur að Wow Air verði sennilega ekki langlíft hvort sem fyrirtækið fær milljarða frá fjárfestum eður ei. Ekkert fyrirtæki sem rúir eigin viðskiptavini inn að skinni og það næstum að gamni sínu verður langlíft í þessum bransa…







