Hversu miklar líkur eru á að hinn íslensk-ættaði flugleitarvefur Dohop taki aftur gullverðlaunin á Óskarsverðlaunahátíð ferðaiðnaðarins? Æði góðar bara að okkar mati.
Það má ekki misskilja okkur. Þó við höfum fundið eitt og annað athugavert við hinn íslensk-ættaða Dohop sem Framsóknarþingmaðurinn Frosti Sigurjónsson kom á koppinn og stjórnar meðfram þingstörfum. Ritstjórn Fararheill var mikill aðdáandi lengi vel og ekki af því að við elskum Frosta eða Framsóknarþingmenn. Aðdáunin snérist meira um að Dohop var raunverulega að finna langlægsta verð á flugi hingað og þangað lengi vel.
Síðan hefur nokkuð skólp runnið til sjávar og á þeim tíma hefur Dohop gefið eftir þó viðurkenna verði að fyrirtækið er sannarlega að standa sig vel í gríðarlega erfiðu samkeppnisumhverfi þar sem nýir aðilar taka til starfa, og deyja drottni sínum, að fimm mínútna fresti.
Tilnefningar WTA, World Travel Awards, þetta árið í flokki flugleitarvéla fengu auk Dohop: Momondo, FareCompare, Cheapflights, Fly, Hipmunk, Kayak, RouteHappy, Adioso og Skyscanner. Allt flugleitarvélar sem ristjórn þekkir ef undan er skilin Adioso.
Okkur lék hugmynd að setja eitt próf fyrir alla þessa aðila. Við leituðum að flugi frá Keflavík til Prag í Tékkland og heim aftur um tíu daga skeið næsta febrúar og leituðum samtímis hjá öllum ofangreindum aðilum. Sem sagt: flug fram og aftur fyrir einn á almenningsfarrými 10. febrúar til 20. febrúar. Ekkert tillit tekið til annarra þátta en lægsta verðs eins og lengd flugs eða aukakostnaðar.
Einn þessara aðila, FareCompare, er handónýtur því sá vísar aðeins á aðrar flugleitarvélar og lengir því leiðina fyrir lesendur. Sá aðili á ekki heima í þessum hópi. Annar aðili sem kolfellur var Skyscanner sem fann bara alls enga leið til að komast þessa daga til Prag og heim til Íslands á ný.
Við völdum Prag vegna þess að ekkert er beint flug þangað svo leitarvélar verða að finna aðrar leiðir til að koma okkur á áfangastað.
Og viti menn! Dohop litli pakkar samkeppnisaðilum í vindil og reykir í kjölfarið eins og sjá má á meðfylgjandi töflu. Enginn kemst með tærnar þar sem Dohop hefur hælana og eru þó þokkalegir risar hér í pakkanum. Verðmunur við eina leit vægast sagt sláandi.
* Leitað samtímis hjá öllum aðilum kl. 21.00 þann 31. október 2015. Lægsta fargjald á flugi fram og aftur fyrir einn. Ekkert tillit tekið til annarra þátta en verðs.








