Tíðindi

Skítaveður við Miðjarðarhafið

  19/07/2011desember 4th, 2014No Comments

Hafi einhver Íslendingur bókað flug til suðurstrandar Frakklands næstu tvær vikurnar er hætt við að minna verði brosað í því fríi en ætla mætti. Í veðurkortunum á þessum annars vinsæla ferðamannastað landsins er gert ráð fyrir stormum og rigningu fram að mánaðarmótum.

Það er víðar sem undarleg veðrabrigði eiga sér stað en hér á landi því stormur með beljandi rigningu er ekki það sem íbúar við suðurströnd Frakklands eiga að venjast í júlí og alls ekki um tæplega tveggja vikna skeið.

Það er engu að síður það sem sjá má á kortum frönsku veðurstofunnar sem sendi frá sér viðvörun í dag vegna storms og mikils úrhellis.

Var viðvörunin tiltölulega harðorð og fólki ráðlagt að halda sig innandyra. Sérstaklega var varað við að gista í tjöldum meðan á þessu stóð yfir.

Um er að ræða héruðin Alpes-Maritimes, Var, Bouches-du-Rhône, Gard and Hérault en hitastigið á þessum slóðum, þó ekki sé það neitt slor, hefur verið heilum sjö gráðum lægra en venja er í júlí hingað til.

Veðurstofan gerir ráð fyrir svipuðum veðurfarsa fram að mánaðarmótum og því kannski ráð fyrir þá sem þangað sækja að taka með sér eins og nokkra doðranta og þykkari nærklæði en upphaflega stóð til.


View Skítaveður á suðurströnd Frakklands in a larger map