Víst er ferð til Nepal vart á óskalista margra nema þeirra sem vita ekkert skemmtilegra en takast á við hæsta fjall veraldar. En hvort sem um það er að ræða eða ekki þá hefur sjaldan eða aldrei verið ódýrara að komast þá leiðina og heim aftur.

Víst er nóg um að vera í Katmandú þó enginn vilji sé til að klífa fjöll og firnindi.
Tyrkneska flugfélagið Turkish Airlines er þessa dagana að bjóða ótrúlega lág fargjöld frá London til Katmandú í Nepal með góðu stoppi í Istanbúl og sömu leið til baka alveg niður í 62 þúsund krónur eða svo. Ef við hendum í pakkann normal fargjaldi til London og frá getum við neglt það tilboðið niður í 80 þúsund krónur frá Íslandi.
Það er sallafínt tilboð alla leiðina til Katmandú og hér ber að hafa í huga að Katmandú er ekki mekka ferðamennsku og afar sjaldgæft að þangað sé komist á kostakjörum.
Og jú, auðvitað hríslast unaðsstraumur niður bak fjallagarpa sem dreymir um að toppa Everest án þess að slá verðtryggt lán á okurvöxtum hjá íslenskum bönkum en þá gleymist að bæði Katmandú og Nepal er miklu meira en bara fjallgarður. Hér er fólk bæði forvitið og vinsamlegt heilt yfir og fjölmargt að sjá og upplifa þó ekki sé fjallabúnaður með í för. Og enginn er verri þó vitni Himalæja-fjöllin með eigin augum jafnvel þó fjallaklifur þyki lítt spennandi.
Ferðatilboð Turkish Airlines frá London gilda á ýmsum dagsetningum frá janúar næstkomandi og allt fram til júní 2019. Sakar ekki að skoða fyrir áhugasama um lönd utan alfararleiða 😉







