Alveg hreint makalaust að lesa um viðbrögð ráðamanna vegna verkfalls flugvirkja einkafyrirtækisins Icelandair. Ekki síst formanns Framsóknarflokks, hræsnarans Sigurðar Inga Jóhannssonar.

Hræsnari í orðsins fyllstu. Samgönguráðherra Sigurður Ingi Jóhannsson. Skjáskot
Fram kemur í viðtali Vísis við Sigurð Inga, sem illu heilli hvílir feitan rassinn nú í stóli samgönguráðherra, að karl hafi „gríðarlegar áhyggjur“ af verkfalli flugvirkjanna hjá Icelandair.
Kauði lætur ennfremur hafa eftir sér að: „Ef það er rétt að menn séu að tala um 20% hækkanir á einu ári þá er það auðvitað langt umfram þennan efnahagslega stöðugleika og framtíð launastrúktursins í landinu.“
Skoðum örlítið skilgreininguna á orðinu hræsni, sem hjá viti bornu fólki er ekki plús í kladda neins einstaklings. Hún er í grófum dráttum að ef maður fordæmir aðra fyrir hegðun sem hann sjálfur er sekur um og afneitar því jafnframt telst hann hræsnari þar sem hann reynir að sýnast betri en hann í raun er.
Nú er það staðreynd að ekki heyrðist svo mikið sem eitt píp frá sama Sigurði Inga þegar kjararáð skammtaði þingmönnum vel yfir 40 prósenta launahækkun hér fyrr á árinu og það afturvirkt í þokkabót. Nú dirfist þessi froðuhaus ríkisstjórnar, sem hefur það sem sérstakt markmið að bæta virðingu Alþingis, að gagnrýna fólk sem hann þjónar fyrir að vilja HELMINGI LÆGRI hækkun í launaumslagið!!!
Það, góðir lesendur, er hundrað prósent hræsni. Sem kemur ekki á óvart enda varði maðurinn skattaskjól milljarðamæringa með því að benda á að „einhvers staðar þyrfti að geyma peningana.“
Þá má í þessu sambandi gagnrýna blaðamenn Vísis líka því engum dettur í hug að spyrja Sigurð Inga hvers vegna hann hafi svona miklar áhyggjur af verkföllum einkafyrirtækis? Gengi Icelandair á ekki að koma neinum við nema hluthöfum fyrirtækisins. Verkföll hjá Icelandair færa bara viðskipti yfir til einhverra þeirra þrjátíu annarra flugfélaga sem nú fljúga með okkur frá Keflavík og heim aftur. Og bjóða oft á tíðum mun betri díla. Sem er plús fyrir íslenska neytendur.
En Sigurður auðvitað aldrei nokkurn tímann á sínum ferli haft hag neytenda í forgrunni. Í því sambandi nægir að líta til margra ára baráttu hans gegn því að hægt sé að flytja inn kjötmeti erlendis frá á mun lægra verði en við þurfum annars að greiða.
Gangi ríkisstjórn Katrínar Jakobs vel að auka hróður þings með svona hræsnara innanborðs.







