Fátt í þessum annars ágæta heimi er mikið súrara en að ferðast til fjarlægra landa full af gleði og tilhlökkun en til þess eins að komast að því við vegabréfsskoðun að vegabréfið stenst ekki kröfur og þér gert að snúa við.

Enginn er svo önnum kafinn að setja ferðalagið allt í uppnám aðeins vegna þess að vegabréfið gildir ekki sex mánuði fram í tímann.

Enginn er svo önnum kafinn að setja ferðalagið allt í uppnám aðeins vegna þess að vegabréfið gildir ekki sex mánuði fram í tímann.

Þessu hafa ansi margir Íslendingar fengið að kenna á ef marka má mjög áberandi skilaboð á vef Utanríkisráðuneytisins. Þar segir:

Undanfarin misseri hefur það margítrekað komið fyrir að Íslendingar á leið til útlanda hafa orðið fyrir því að þeir lenda í vandræðum vegna gildistíma vegabréfa, er synjað um landgöngu eða synjað um að fara um borð í flugvélar, ef vegabréf þeirra gilda ekki að minnsta kost 6 mánuðum lengur en áætluð dvöl í viðkomandi ríki.

Þetta er fyrir neðan allar hellur gott fólk. Hversu stressandi lífi hljóta þeir að lifa sem æða út í heim í von um slökun aðeins til að komast að því að það gleymdist að endurnýja vegabréfið.

Jú, að öllum líkindum er ekkert mál að fara til Kaupmannahafnar eða London þó vegabréfið sé að renna út á tíma en hvers vegna taka áhættuna? Velflest ríki heims krefjast þess að fólk sé með gilt vegabréf AÐ MINNSTA KOSTI sex mánuði fram í tímann.

Við hjá Fararheill þekkjum að lenda í vandræðum vegna þessa. Einn einasta dag vantaði upp á sex mánuðina við vegabréfsskoðun í Alsír fyrir nokkrum árum og það var aðeins fyrir miskunnsaman tollvörð sem áritun fékkst eftir þó nokkur fundahöld. Það er undantekningin en ekki reglan. Yfirleitt er löggæslumönnum nákvæmlega sama.

Góð regla er því að endurnýja vegabréfið strax þegar eitt ár er eftir í stað þess að spara nokkra þúsundkalla og nýta það fram á lokadaginn. Það er í öllu falli betra en vera snúið aftur á flugvelli í erlendu ríki með tilheyrandi veseni og peningaútlátum. Og nei, Utanríkisráðuneytið getur ekkert hjálpað í þessari stöðu.