Borgin Dakar í Senegal í Afríku kveikir ávallt hjá okkur hér alls fráleita sýn inn í gamlar Tinnabókmenntir. Fimmtíu, fimmtíu ævintýri og vandræði. En þó borgin og borgarbúar séu fátækari en nánast allir á Íslandi fer mikið fyrir brosum og vingjarnlegheitum gagnvart þeim sem láta sig hafa ferð hingað.

Portúgalska flugfélagið TAP býður æði oft súper fargjöld til fjarlægra áfangastaða.
Allnokkur flugfélög bjóða túra til Dakar á vesturströnd Afríku frá hinum ýmsu borgum Evrópu. Gallinn þó sá að túrinn kostar oftast sitt. Rúmlega hundrað þúsund krónur fram og aftur þykir almennt vel sloppið til þessa fátæka Afríkuríkis en algengt er að flugið kosti 150 þúsund krónur plús.
Ekki frá Lissabon í Portúgal með ríkisflugfélaginu TAP. Það flugfélag er mjög reglulega að bjóða súperdúper fargjöld til áfangastaða sem við hér á Fróni þekkjum aðeins úr Tinnabókunum.
Hvernig komumst við svo til Lissabon til að njóta góðra fargjalda TAP? Jú, við þurfum aðeins að skottast til Köben eða London eða Amsterdam eða Parísar eða Alicante. Frá öllum borgunum er beint flug til Lissabon og það oftar en ekki með lággjaldaflugfélögum fyrir klink og kanil.
Aðeins merkilegra í næstu fermingarveislu að státa sig af túr til Dakar en enn einni ferðinni til Kanaríeyja ekki satt? Svo er Lissabon sjálf ekki galin 😉







