Tíðindi

Sekt dugar ekki til gagnvart Heimsferðum

  17/09/2009maí 11th, 2014No Comments

Tæpur mánuður er síðan Neytendastofa sektaði ferðaskrifstofuna Heimsferðir um 600 þúsund krónur vegna brota á reglum um vöruverð. Miðast öll verð ferðaskrifstofunnar við verð frá og hafa oftast bæst við alls kyns aukagjöld ofan á verð sem auglýst er á vef Heimsferða.

Eitt og hálft ár er síðan ferðaskrifstofunni var send aðvörun vegna verðmerkinga sinna en án árangurs og var sektarákvæðum því beitt í ágúst síðastliðnum. Nú mánuði síðar hefur ekkert breyst enn á vef Heimsferða og enn eru öll verð á ferðalögum fyrirtækisins auglýst frá krónum…

Ber því að skoða gaumgæfilega hvaða viðbótarkostnaður bætist við farmiða sem keyptur er hjá fyrirtækinu.