Kínverjar eru að gera sig gildandi víðar en í kínahverfum heimsins. Kínversk flugfélög gera nú strandhögg víða og fylla rellur sínar gjarnan með fargjöldum sem eru næstum of góð til að vera sönn. Eða hvernig hljómar Köben til Hong Kong og sama leið til baka fyrir heilar 39 þúsund krónur!!!

Er þetta besta tilboð EVER til Hong Kong frá Evrópu? Líklega. Skjáskot

Þetta hljómar eins og lygi. Tæpar tuttugu þúsund krónur alla leið frá kóngsins Köben til Hong Kong og tuttugu þúsund krónur sömu leið til baka. Svona á pari við lægstu fargjöld Icelandair héðan til London. Munurinn hins vegar sá að flugið héðan til London tekur sex stundir fram og aftur en flug frá Köben til Hong Kong og aftur tekur 22 STUNDIR!

Air China, sem nýlega hóf að fljúga frá Köben til valinna áfangastaða í Asíu er þessa stundina að bjóða upp á þetta lygilega tilboð til Hong Kong. Hér vissulega ekki mikið með í för og um að ræða almennt farrými en sætisrými þar þó ekki í lággjaldaflugfélagastíl og þjónusta öll betri.

Mínusinn, eða plúsinn eftir því hver er að ferðast, er að millilent er í Beijing bæði fram og aftur og það verður að dúllast þar í nokkrar klukkustundir. Þá er jú líka miður að óeirðir eru í Hong Kong þegar þetta er skrifað og afar erfitt að njóta borgarinnar ef hundruð þúsunda íbúa eru í uppreisnarhug á götum úti.

Á móti kemur að við komumst þokkalega ódýrt til Köben og heim aftur plús að ólíklegt verður að teljast að allt sé enn í hers höndum í Hong Kong í júlí á næsta ári. Það er síðasta dagsetningin sem við finnum á vef Skyscanner á þessum prís frá Köben. Fram að þeim tíma er um töluvert að velja en fólk þarf að leita í þaula.

Nánar hér.