Stór skuggi gæti verið að falla á sólskinsríkið Flórída í Bandaríkjunum. Stjórnvöld í fylkinu íhuga nú að samþykkja svokölluð „trúfrelsislög“ sem gera fyrirtækjum í ríkinu kleift að neita að þjónusta eða afgreiða samkynhneigt fólk ef þeim sýnist svo.
Trúfrelsislög, Religious Freedom Law, er auðvitað orðskrípi í þessu samhengi en lögin munu heimila forsvarsmönnum fyrirtækja að sniðganga samkynhneigða eftir geðþótta. Með öðrum orðum neita að veita þjónustu af nokkru tagi.
Nái frumvarpið fram að ganga mun það tæplega þýða að samkynhneigðum verði meinaður aðgangur að Disneyworld eða Universal og seint munu verslanir loka dyrum sínum á samkynhneigða.
En þetta gæti skipt máli þurfi fólk aðhlynningu eða læknisþjónustu. Heilsugæsla í ríkinu er nefninlega að langmestu leyti einkarekin og þjáist yfirlæknar eða forstjórar slíkra fyrirtækja af fordómum í garð samkynhneigðra hafa þeir fullt leyfi til að vísa fólki brott og verða í fullum rétti til þess líka.
Fararheill mun áfram fylgjast með og láta vita verði þessi þvæla að veruleika en fræðast má meira um málið til dæmis hér hjá Slate.








