Enn á ný er það sá tími mánaðarins hjá lággjaldaflugfélaginu Norwegian. Super Tirsdags-Kupp eins og Norðmaðurinn kallar það og þýðir einfaldlega þriðjudagsútsala á völdum ferðum flugfélagsins.
Sumir hafa gagnrýnt ritstjórn Fararheill undanfarin misseri fyrir að vera of hörð við hið sjálfskipaða íslenska lággjaldaflugfélag Wow Air. Það sé nýtt flugfélag og þurfi tíma til að dafna og komast á kopp.
En það var Skúli Mogensen sem ákvað að setja Wow Air í flokk með lággjaldaflugfélögum en ekki við. Og í þeim geira eru fáir að bjóða betur 24/7 en Norwegian. Hefur til dæmis einhver séð Wow Air auglýsa flug til Alicante niður í sjö þúsund krónur og það reglulega?
Tilboðsverð á flugi til Mallorca er eitt af þeim tilboðum sem nú eru í boði hjá þeim norsku en vitaskuld frá Osló og verðmiðinn rúmar sjö þúsund krónur út og um ellefu þúsund krónur heim. Fram og aftur undir 20 þúsund krónum. Það köllum við lággjaldaflugfélag gott fólk. Eðli málsins samkvæmt er enginn farangur innifalinn.
Hvernig getum við á Fróni nýtt okkur þessa fínu díla? Ein leið er að renna yfir lægsta verð fram og aftur hjá SAS, Icelandair og Norwegian frá Keflavík til Oslóar. Við finnum í fljótu bragði ágætt verð hjá Icelandair í byrjun september og kostnaðurinn 33 þúsund á mann lægst. Það auðvitað blóðugt en gerir okkur þó kleift að snerta fæti niður á Mallorca í fínum mánuði rétt kringum 50 þúsund kallinn. Með hótelbókunarvél Fararheill má svo finna hræbilleg en góð hóteltilboð í þokkabót og þá er aðeins eftir að halla sér aftur með ferskan kokteil og njóta andartaksins.








