Enn á ný sér verslunarmiðstöðin Leifsstöð ástæðu til að reyna að draga til sín frekari viðskipti. Verslunarmiðstöðin auglýsir nú „panta og sækja“ þjónustu en tilraun Fararheill til að panta og sækja reyndist árangurslaus.

Hvar er smáa letrið?

Hvar er smáa letrið?

Eins og sjá má á auglýsingum Fríhafnarinnar er lítt verið að hafa fyrir því að ítreka að aðeins er hægt að nýta sér þjónustuna sé fólk að fara í flug eða koma úr flugi.

Þvert á móti má af auglýsingunni lesa að það sé hægt einfaldlega hægt að panta og svo sækja og engin krafa gerð um neitt. Þarf engin kreditkort? Þarf ekkert að fara um Leifsstöð?

Þetta vekur upp spurningar um hversu oft verslanir í flugstöðinni reyna að ná til hins almenna Íslendings. Heilu auglýsingaherferðirnar verið keyrðar hin síðustu ár. Gengur svona illa?

Án þess að í hópnum séu lærðir verslunarfræðingar þykir Fararheill ástæða til að benda Fríhöfninni á að lækka verðlagningu í verslunum sínum og jafnvel auka úrval án þess þó að þjappa meira að biðfarþegum.

Það er nefninlega raunin í þeim óformlegu stikkprufum sem við höfum tekið í verslunum í Leifsstöð að það er eingöngu tollar sem fara af mörgum vörum sem eru að öðru leyti á sama verði og annars staðar. Með öðrum orðum; álagning verslana er að minnsta kosti hin sama. Sem er galið í örsamkeppnisumhverfinu í Leifsstöð.

Þá finnum við hvergi merki um að erlendum ferðalöngum finnist verðlag í Leifsstöð merkilegt eða gott þó mörgum þyki ágætt að fara þar um. Þræða má Tripadvisor endalaust en engan höfum við fundið sem telur ástæðu til að hafa orð um frábært verðlag Fríhafnarinnar.

Svo er úrvalið hræðilega takmarkað. Hvernig væri til dæmis að opna apótek í Leifsstöð. Apótek sem selur öll rándýru lyfin tollfrjálst en ekki bara gagnslaus krem og augnskugga. Það eitt og sér gæti aukið áhuga nokkurs fjölda á ferðalögum.