Tilkynnt var í dag að Iceland Express hyggist fljúga til Orlando á Flórída í mars og apríl á næsta ári. Er þar um tilraunaflug að ræða en gangi það vel er ekki útilokað að flugfélagið fljúgi þangað reglulega í framtíðinni.
Orlando er fjórði áfangastaður flugfélagsins í Bandaríkjunum á skömmum tíma. Hefur um tíma verið flogið til Boston og New York og mun Chicago að auki bætast við í sumar.
Sjá allt um Orlando og nágrenni hér.






