Það tók ekki langan tíma. Forsvarsmenn Icelandair, sem hafa stjórnað flugfélaginu með slíkum myndarskap á mesta ferðamannatíma í Íslandssögunni, að bréf í flugfélaginu kosta nú svipað og skeinipappír í Bónus hafa nú fundið helstu sökudólga: helvískir flugþjónarnir!!!

Amms. Stjórnendur Icelandair líklega ekki gengið í sama skóla og ritstjórn Fararheill, né heldur fengið siðferðiskennd, virðingu og umburðarlyndi í vöggugjöf. Þið vitið, þetta sem Jesú sagði.

Fyrir þessu lífeyrissjóðsfyrirtæki snýst allt um hagnað á hagnað ofan hvað sem það kostar. Sama prógramm og hefur skafið 65 PRÓSENT af hlutabréfaverði flugfélagsins síðustu misserin.

Íslenska flugfélagið nú sent bókhaldsdeild sína til Eystrasalts þar sem laun eru 1/4 af því sem þau eru hér. Þjónustuverið er nú mannað Filippseyingum hvers mánaðarlaun eru 1/15 af því sem þau eru hér heima og nú skulu helvískir innlendir flugþjónarnir vinna fullan vinnudag hvað sem tautar og raular. Ekkert væl lengur um að koma ungbörnum til læknis, fylgja börnunum fyrsta skóladaginn eða vera mögulega til staðar þegar unglingurinn á heimilinu íhugar sjálfsvíg vegna brostins hjarta. Allir flugþjónar skulu vinna fullan vinnudag og ekki orð um það meir.

Galið prógramm frá A til Ö

Gott og blessað að leita leiða til að lækka kostnað og vissulega er Icelandair heilt yfir að greiða mun hærri laun en gerist og gengur í bransanum. Það klárlega mínus þegar samkeppni fer harðnandi og olíuverð snarhækkandi sökum geðbilaðs manns í Hvíta húsinu vestanhafs.

En bæði harðnandi samkeppni og hærra olíuverð hafa legið fyrir um langa hríð. Harðnandi samkeppni lá í augum uppi yfir Atlantshafið um leið og Boeing og Airbus framleiddu fyrstu vélarnar sem gátu flogið þá leiðina með 30 prósent afslætti með tilliti til eldsneytiskostnaðar umfram eldri vélar. Verð á þotueldsneyti verið það lægsta í manna minnum um tæplega þriggja ára skeið og það sannarlega skilað afgangi tekjumegin í bókhaldinu. En hvaða kjánar ganga út frá því sem vísu að eldsneytisverð standi í stað árum saman. Slíkt hefur aldrei nokkurn tímann átt sér stað frá því olía og eldsneyti fór að verða ríkur hluti af mannkynssögunni.

Nýr stjórnarformaður Icelandair. Sá ekki beint rokkað hingað til í neinu tilliti. Skjáskot

Þetta skiptir sérstöku máli fyrir Icelandair því meðalaldur flugflota félagsins er rúm 20 ár. Með öðrum orðum; vélar Icelandair nota 15-30 prósent meira eldsneyti en þær vélar sem runnið hafa af færiböndum síðustu fimm, tíu ár. Þess vegna er galið að keppa við Wow Air á sömu flugleiðum eins og Icelandair hefur reynt að gera. Alls ómögulegt að bjóða samkeppnishæf fargjöld þegar þriggja ára gamlar vélar Wow Air eyða allt að 30% minna eldsneyti en rellur Icelandair á sömu flugleiðum. Samt var það reynt í fjölda tilfella.

Fleiri mínusar í kladdann

Aðrar ákvarðanir stjórnenda Icelandair síðustu árin hafa nú ekki beint verið traustvekjandi heldur. Er virkilega arðbært að fljúga reglulega milli Alaska og Íslands? Eða milli Keflavíkur og Halifax á hjara veraldar í Kanada? Við höfum feitar efasemdir um það. Hafi þær áætlunarferðir skilað arði gegnum tíðina étum við hatt okkar og staf.

Og hvers vegna elta Wow Air til Dallas, Pittsburg og Cleveland í Bandaríkjunum og Montreal í Kanada? A) hvert flug kostar Icelandair miklu hærri upphæðir sökum eldsneytiskostnaðar og B) þessir staðir hafa ekki verið á dagskrá neinna alþjóðaflugfélaga sökum þess að þetta eru bölvuð krummaskuð í alþjóðlegu tilliti. Svona svipað og Lufthansa byði beint flug frá Frankfurt til Þórshafnar á Langanesi. Mjög spennandi fyrir sjö einstaklinga eða svo.

Svo má ekki gleyma núinu. Forsvarsmenn Icelandair nú í bullandi 2008 útrás á Grænhöfða- og Asóreyjum með tilheyrandi tugmilljóna fjárútlátum. Og jú, Icelandair ætlar að elta Wow Air til Indlands líka og það með stórauknum kostnaði fyrir alla Íslendinga því fjölga þarf starfsfólki í sendiráði Íslands í Indlandi um fleiri tugi til að afgreiða áritanir og nudda tær sendiherrans. Sama manns og lét sig hverfa úr ríkisstjórn Íslands fyrir að bjóða handónýtu fólki milljónir króna skattborgara fyrir að segja starfi sínu lausu.

Icelandair getur ekki keppt við lággjaldaflugfélög með glænýjar vélar. Svo hvers vegna að reyna það?

Ónýtt sóknarfæri

Alveg eins og Mercedes Benz kostar meira en Trabant, armbandsúr frá Casio kosta minna en úr Louis Vuitton og klórblandaður erlendur klaki kostar minna en íslenskur klaki í íslenskum verslunum, þá gefur auga leið að eina leiðin til að tæla til þín viðskiptavini þegar þinn kostnaður er helmingi hærri en helstu samkeppnisaðila á sömu leiðum er að bjóða eitthvað spes. Eitthvað júník. Eitthvað öðruvísi.

Ein leið til þess er ekki aðeins að auglýsa betri þjónustu heldur og standa við það. Almennt eru allir sem geta reiðubúnir að borga meira fyrir þrönga stúdíóíbúð í Mosfellsbæ en koju og sameiginlegt klósett með þrettán öðrum í miðborg Reykjavíkur.

Wow Air er að mörgu leyti koja með þrettán öðrum í herbergi. Þjónustustig við frostmark á öllum stigum, andardráttur um borð kostar 20 krónur, sæti þröng og óþægilegri en Staksteinar Davíðs Oddssonar á Mogganum plús að eina afþreyingin er að telja hversu oft maðurinn í sætinu fyrir framan borar í nefið og slengir horinu undir sæti sitt.

Í þessu ljósi er auðvelt að bjóða góða þjónustu og Icelandair hefur forskot á stöku sviðum. Það er afþreying um borð þó vissulega sé sú tækni komin til ára sinna. Netaðgengi er mögulegt ef þú pungar extra út fyrir og undantekningarlítið eru flugstjórar Icelandair miklu betri en flugstjórar Wow Air að gefa farþegum tíma dagsins og við hverju megi búast á leiðinni.

En eins og við höfum bent á áður, og staðfesta má með lesningu á vinsælum samfélagsmiðlum, þá eru flugþjónar Icelandair í besta falli miðlungs. Alls óhætt að fara fram á ljúfari og mannlegri þjónustu í stað þess að setja á excel að flugþjónar skuli valsa um með glingur og drasl fimmtán sinnum á hverri klukkustund í hverju flugi með tilheyrandi veseni fyrir þá sem vilja á klósettið á flugi eða vilja kannski aðeins rétta úr sér til að fá ekki blóðtappa í hvern kima.

Icelandair gæti líka tekið sér tak varðandi þjónustu á jörðu niðri. Engin verðlaun fyrir að hafa tvö innritunarborð opin fyrir tæplega 200 farþega klukkan sex að morgni þegar allir eru svangir og með stírur í augum.

Icelandair gæti líka sýnt þann lit að gefa fólki upplýsingar um réttindi sín þegar eitthvað bjátar á. Samkvæmt nánast öllum ákvörðunum Samgöngustofu síðustu tíu árin lætur Icelandair það alveg ógert að upplýsa viðskiptavini sína um réttindi sín eins og Evrópulög kveða á um. Víst kostar það skildinginn fyrir flugfélagið en þá gleymist þetta sem spekingar kalla gúddvill. Ef þú kemur fram við manneskju eins og manneskju þá man viðkomandi það um áraraðir og er ekki líkleg til að hrauna yfir fyrirtækið á samfélagsmiðlum. Slíkt getur nefninlega auðveldlega kostað skilding líka.

Út með einhæfa stjórnarmenn

Icelandair myndi sennilega líka njóta góðs af ef allir stjórnarmenn fyrirtækisins væru ekki alltaf milljarðamæringar eða lögfræðingar eða hvoru tveggja . Það fólk þekkir ekki raunveruleika stærsta hluta þeirra sem fljúga með flugfélaginu heldur taka aðeins ákvarðanir sem taka mið af sér og sínum.

Sem er sniðugt ef við ætluðum að fljúga með Trump Air en hér erum við að tala um lítið evrópskt flugfélag frá eyju í ballarhafi. Flugfélag sem flýgur í nafni Íslands, flugfélag sem er á floti sökum lífeyrissjóða íslenskra launþega og flugfélag sem getur gert töluvert miklu betur en það gerir. Til dæmis með því að halda áfram að bjóða starfsfólki sínu sveigjanlegan vinnutíma…