Tíðindi

Óhætt að synda og fiska í Mexíkóflóa

  16/05/2011júlí 13th, 2021No Comments

Olíuslys BP í Mexíkóflóa er ársgamalt orðið en nú loks telur Kaninn óhætt fyrir mann og annan að stinga sér á nýjan leik til sunds við strendur flóans.

Búið er að hreinsa upp strendurnar að fullu frá Texas til Flórída og ferðamálayfirvöld í strandríkjum Bandaríkjanna mana menn til að finna svo mikið sem einn olíuflekk á þeim slóðum.
Sé það rétt er um mikið afrek að ræða því magnið af olíu sem barst í sjóinn samsvarar fimm milljón tunnum af olíu eða á skiljanlegra máli; samsvarandi magn og er í 318 sundlaugum í Olympíustærð.

Ekki aðeins er sagt alls óhætt að synda og striplast á ströndum Mexíkóflóa heldur og á fiskveiði að vera eins og best verður á kosið.

Hefur Matvæla- og Lyfjaeftirlitsstofnun Bandaríkjanna auk annarra stofnanna gert margvíslegar athugunanir á fiski frá þessum slóðum og ekkert óeðlilegt fundið þannig að fiskmetið er óhætt að borða.