Jamm og jæja. Í hvert sinn sem við rekumst á feitlagin ferðatilboð á prísum sem eru fjarri því sem við eigum að venjast hér á klakanum látum við ykkur vita. Nú er í boði hjá bandarískri ferðaskrifstofu tólf daga safarík ferð til Kína í nóvember fyrir sléttar hundrað þúsund krónur.
Það er skrambi góður prís jafnvel þó inni í því sé ekki flug til og frá Kína.
En það er minnsta málið. SAS og fleiri flugfélög bjóða flug fram og tilbaka frá Stokkhólmi, Osló eða Kaupmannahöfn fyrir rúmar hundrað þúsund þessi dægrin og því þarf feit ferð til Kína næsta vetur ekki að kosta meira samtals en 200 til 250 þúsund krónur á mann.
Til samanburðar hafa Kínaklúbbur Unnar og Bændaferðir boðið keimlíkar ferðir en verð á mann í þeim tilvikum er nær því að vera 500 þúsund á mann. Því má spara sér heilmikla peninga ef fólk setur ekki fyrir sig að hafa ekki íslenskan fararstjóra.
Ferðin sem um ræðir, og í boði hjá Top China Tours, er til Beijing og þaðan farið til Xi´an, Luoyang, Suzhou og endað í Shanghai. Meðal þess sem skoðað er á leiðinni er hinn heimsfrægi Terracotta her, Múrinn mikli, Forboðna borgin, Tienmen torgið, Himneska hofið, Shaolin klaustur, stórkostlegir garðar Suzhou sem eru nógu merkilegir til að komast á Heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna og margt fleira stórskemmtilegt.
Gisting er ekki af verri endanum heldur. Tíu nætur á fjögurra stjörnu hótelum með morgunmat, ein nótt um borð í lest með tilheyrandi svefnkáetu og aðgangur að helstu söfnum.
Þó ekki séu flugferðir innifaldar í verðinu sér ferðaskrifstofan um að leiðbeina fólki til og frá flugvöllum og veita aðstoð við komu og brottför svo enginn þarf að óttast að vera hjálparlaus vegna þess.
Sjá nánar hér.







