Það er engin tilviljun að allra vinsælustu ferðamannastaðir á Íslandi eru Bláa lónið, Geysir, Gullfoss, Þingvellir og nú síðustu misserin Eyjafjallajökull og Fimmvörðuháls. Vissulega hefur fjarlægð frá höfuðborginni mikil áhrif á vinsældirnar en engin vafi leikur á að Facebook, Tripadvisor, Twitter og fleiri slíkir netmiðlar hafa veruleg áhrif.
Alla jafna er þessi þróun bara jákvæð. Áhugasamir fá upplýsingar ekki beint frá gerilsneyddum ferðamannabæklingum eða yfirborðskenndum auglýsingum frá Ferðamálaráði heldur og frá vinum, ættingjum og fyrir hreina slysni gegnum hinar og þessar vefsíður.
En á þessu er einn galli og hann kallast einsleitni. Spár fram í tímann gera ráð fyrir að ferðamönnum á heimsvísu fjölgi verulegu á næstu tíu til þrjátíu árum og það mun gerast hratt þegar þær billjónir sem búa á Indlandi og í Kína komast í millistéttarhópinn sem efni hefur á að ferðast.
Og hvað finnur svo fólkið þegar það gúgglar Ísland? Jú, Bláa lónið, Geysi, Gullfoss, Þingvelli, Eyjafjallajökul og Fimmvörðuháls. Við sjáum dálítið afleiðingarnar nú þegar enda eru þeir teljandi á fingrum einhents manns þeir Íslendingar sem nú heimsækja Gullfoss og Geysi eða aka Gullna hringinn. Bæði Gullfoss og Geysir eru nú orðnir fjöldatúrismastaðir. Útlendingurinn fattar það ekki en við hér heima gerum það og hættum að heimsækja enda miðast þjónusta öll og verðlag við erlenda ferðamenn.
Kannski er þetta bara í góðu lagi en staðan breytist enn meira þegar um er að ræða hótel, veitingastaði, verslanir og annað slíkt. Þúsundir dæma eru um að veitingastaður sem fær fín meðmæli á Tripadvisor nýtur þess mjög í mörg ár á eftir. Sá er þá fyrsta nafnið upp þegar leitað er að góðum veitingastað í viðkomandi borg og afleiðingin, vegna þess að hjarðhegðun er mörgum í blóð borin, er að staðurinn verður gríðarlega vinsæll og engum dettur í hug að leita víðar eða annað.
Fararheill telur þessa þróun hörmulega vegna þess að í hverri einustu borg og á hverju einasta svæði í heiminum er að finna margt dásamlegt sem hvorki ferðahandbækur né Tripadvisor hefur hugmynd um. Enn verra er að verði litli kósí frábæri vel faldi trattoria veitingastaðurinn í Flórens geðveikt vinsæll meðal erlendra gesta er eins líklegt að fastagestirnir síðustu áratugina leiti annað.







