Þegar þetta er skrifað kostar einn bandarískur dollar rúmlega 122 íslenskar krónur. Sem merkir að fyrir þá sem elska þvæling um Bandaríkin gætu næstu tvær mánuðir sparað tugþúsundir króna.

Tuttugu dollarar frá Kolóradó til Texas. Eða 20 dollarar frá Orlandó til New Orleans…
Bandaríska lággjaldaflugfélagið Frontier er þessi dægin með útsölu á fargjöldum hingað og þangað um Bandaríkin en gallinn sá að fljúga verður í apríl eða maí til að njóta.
Sem er príma stöff fyrir þá Íslendinga sem elska flökt um þetta stóra land og hafa hugsað sér að ferðast þangað í þessum eða næsta mánuði.
Eða hver setur fyrir sig að fljúga frá Denver í Kolóradó til Austin í Texas fyrir 20 dollara? Eða frá New Orleans til Orlandó fyrir sömu upphæð?
Sjálfsagt að skoða þetta nánar hér ef fólk er á annað borð að hugsa um Bandaríkjaþvæling næstu daga og vikur…







