Í Mogga dagsins eru heilar tíu síður helgaðar ferðum og ferðalögum. Sem er flott framtak en við lesturinn renna allnokkrar grímur á hugsandi fólk.

Fréttaefni eða kynningarefni? Það er stóra spurningin varðandi ferðaúttekt Moggans. Skjáskot

Fréttaefni eða kynningarefni? Það er stóra spurningin varðandi ferðaúttekt Moggans. Skjáskot

Hugsandi fólk og vel lesið veit sem er að fjölmiðlar, íslenskir þar meðtaldir, eru farnir að fela eða dulbúa kynningarefni sem fréttir eða tíðindi af einhverjum toga. Römm kynningarlykt er af tíu síðna úttekt Moggans þó hvergi sé það tekið fram.

Það má ráða af ýmsu og þá ekki síst að síðurnar tíu eru tileinkaðar að mestu leyti viðtölum við tíu ferðaskrifstofuaðila. Þeir fá allir að blaðra út í eitt um sínar frábæru ferðir, frábærar viðtökur og ótrúlegar vinsældir allra sinna ferða möglunarlaust.

Grípum niður í nokkrar fyrirsagnir:

„Mikill áhugi á djammferð með FM til Mallorca.“

„Norræna ferðskrifstofan selur spennandi skemmtisiglingar […]“

„Paradís golfáhugafólksins.“

„Með stjörnum og lífskúnstnerum á vesturströnd Bandaríkjanna.“

„Þægileg flug til Vínarborgar og Bratislava og gaman að heimsækja vínhéruðin.“

Hmmm. Annaðhvort var blaðafólkið sofandi eða að „ferðablað“ Moggans er kynningarefni. Hvað annað kallast það þegar fyrirtæki geta dásamað eigin ferðir í hástert og þau ummæli fjúka beint í fyrirsögn?

Sé um kynningarefni að ræða er lögum samkvæmt ólöglegt að birta slíkt án þess að taka sérstaklega fram að um kynningarefni sé að ræða. Og kynningarblað um ferðir er allt annar hlutur en fréttablað um ferðir.