Hið venjulega Bláa lón er kannski ekki nógu sexí lengur. Nema þarna úti einhvers staðar sé nýtt og betra blátt lón sem aðeins Icelandair veit um.

Ritstjórn Fararheill og eflaust mörgum öðrum þætti fengur í að vita hvar þessi mynd er tekin. Skjáskot

Ritstjórn Fararheill og eflaust mörgum öðrum þætti fengur í að vita hvar þessi mynd er tekin. Skjáskot

Rákumst á meðfylgjandi mynd á rússneskum vef Icelandair. Þar tilboðsferð til Íslands í boði og auðvitað er kynningarmynd af unaðsstund pars í Bláa lóninu…

Nema þessi mynd er ekkert frá Bláa lóninu og ekki heldur frá Jarðböðunum á Mývatni sem okkur vitandi eru þeir einir staðir á Íslandi þar sem kísilblátt hveravatn er normið.

En á þeim stöðum eru ekki mosagrænir og gullfallegir hraundrangar um allar trissur. Né heldur nokkrar líkur á að ungt fallegt par sé með lónið út af fyrir sig.

Assgoti er dapurt þegar fyrirtæki grípa til bellibragða til að freista erlendra ferðamanna. Fyrir utan að vera á mörkunum að vera löglegt.

Nema náttúrulega að þetta sé raunverulega nýtt og óþekkt lón. Væri þá ekki allt í lagi að deila með Íslendingum svona áður en einhver fjárfestirinn setur upp bás og heimtar tíu þúsund kall fyrir að dýfa litlutá ofaní?

russki