Eins og Fararheill hefur bent á hefur mjög dregið úr framboði á tilboðsfargjöldum hjá Icelandair. En nú duttu í hús ný hraðtilboð flugfélagsins og þau hægt að nýta vel fram í júní.

Ný hraðtilboð Icelandair. Skjáskot

Ný hraðtilboð Icelandair. Skjáskot

Um er að ræða lækkað verð á flugi til átta áfangastaða flugfélagsins og þar kannski mest áberandi flug aðra leið til New York niður í 27.900 krónur. Toronto í Kanada á sama verði en við höfum einmitt bent lesendum á að frá kanadísku borginni er flogið ódýrt til Kúbu og annarra staða í Karíbahafi ef það heillar fólk.

Þá er 14.900 krónur út til London eða Köben lægra verð en Wow Air er að bjóða til þessara áfangastaða og taska náttúrulega með hér. Sjálfsagt að nýta sér það.

Í öllum tilvikum er hægt að fljúga frá miðjum apríl og fram í júní. Þeir sem eru forsjálir og taka sumarfrí í lok maí, byrjun júní fá því bæði flug á lægra verði og ferðapakka líka því annatími á vinsælum erlendum stöðum er enn ekki hafinn.

Sem fyrr er þetta aðeins í boði til hádegis miðvikudag 28.janúar.