Tíðindi

Níu borgir á nýju ári

  30/01/2013janúar 12th, 2014No Comments

Sjaldan hefur Icelandair boðið flug á tilboðsverði til jafnmargra borga í einu og nú en til miðnættis í kvöld býðst gestum og gangandi að kaupa ferðir til einna níu mismunandi borga með verulegum afslætti.

Forráðamenn eru reyndar aðeins að breyta um stíl í þessu tilfelli og bjóða tilboðin frá miðnætti til miðnættis en sólarhringstilboð flugfélagsins hingað til hafa verið í boði frá hádegi til hádegis.

  • Önnur leiðin til Glasgow í Skotlandi fæst nú á 14.900 krónum og er hægt að ferðast frá mars fram til 16. júlí.
  • Hin bæverska Munchen í Þýskalandi er á sama verði en ferðatíminn 23. febrúar til 26. apríl.
  • Styttra er til Frankfurt en Munchen en dýrara samt á 16.900 krónur og hægt að ferðast fram í lok maí.
  • Þrjár norskar borgir, Stavangur, Bergen og Þrándheimur, á tilboði á 14.900 krónur frá lok mars fram í júní.
  • Til Toronto í Kanada fæst flug fyrir 27.900 krónur aðra leið en fljúga verður í mars eða maí.
  • Flug til Washington er sömuleiðis á 27.900 aðra leiðina nú frá 26. mars og fram í miðjan júní.
  • Að síðustu fæst ferð til Seattle fyrir 36.900 aðra leiðina í apríl og maí.

Kjarabót fyrir ferðaþyrsta og gott að hafa í huga að fara að gera áætlanir ætli fólk á eigin spýtur að ferðast í vor og sumar. Oft á tíðum er eina leiðin til þess að fljúga frá öðrum stöðum áfram. Norwegian flýgur ódýrt til Spánar frá Stafangri og Þrándheimi, Airberlin býður ýmislegt fýsilegt frá Frankfurt og frá Toronto er komist til Kúbu í beinu flugi svo fátt sé nefnt.

Heimasíða Icelandair hér.