Skip to main content

Samkvæmt tölum frá Noregi og Svíþjóð færist það töluvert í aukana að ferðamenn fái bætur vegna veikinda hvers konar á ferðalögum sínum samkvæmt tölum frá tryggingafélaginu Europeiske Reiseforsikring. Það sem verra er; sífellt fleiri fá ekki notið ferðalaga sinna vegna niðurgangs.

Niðurgangur getur farið illa með ferðalagið

Niðurgangur getur farið illa með ferðalagið

Rekur tryggingafélagið útibú um öll Norðurlönd nema á Íslandi og samkvæmt tölum þeirra frá Noregi og Svíþjóð fengu fleiri en í meðalári bætur vegna ýmissa kvilla sem upp komu á ferðalögum.

Niðurgangur virðist vaxandi vandamál almennt samkvæmt tölfræðinni og er Egyptaland þar alveg sér á parti. Virðist óhætt að draga þá ályktun að hreinlæti á þarlendum veitingastöðum sé töluvert undir meðallagi. Af rúmlega 17 þúsund tilkynningum um veikindi í því ágæta landi sem sænskir ferðamenn urðu fyrir 2012 voru rúmlega 11 þúsund þeirra vegna alvarlegs niðurgangs.

Tyrkland og Túnis komu næst á blaði varðandi niðurgang en um 17 prósenta tilkynninga þaðan voru tilkomnar vegna þessa sama leiðigjarna niðurgangs.

Niðurgangur skýrist undantekningarlítið af sýktum mat vegna óhreinlætis.