Ætli séu tengsl milli þess hve mikið Wow Air auglýsir hjá Morgunblaðinu og að fregn þess efnis að forstjóri flugfélagsins Norwegian hefði enga trú á Ameríkuflugi Wow var fljótt fjarlægð af vef mbl í dag?

Forstjóra Norwegian líst ekki vel á áætlanir Wow Air samkvæmt frétt sem mbl fjarlægði af vef sínum í dag
Sú var byggð á frábærri frétt frá túrista.is þar sem forstjóri þessa spútnikfyrirtækis Norwegian gefur lítið fyrir stórhuga áætlanir Skúla Mogensen forstjóra Wow að fljúga fólki til og frá Bandaríkjunum strax á næsta ári. Forstjórinn, sem miðað við ótrúlega velgengni Norwegian, veit hvað hann syngur og segist ekki hafa mikla trú á að flug Wow þangað verði að veruleika.
Ekki síður er merkilegt að fram kemur í viðtalinu við forstjórann að Norwegian hafi eingöngu náð undir sig danska lágfargjaldamarkaðnum sökum þess að Pálmi Haraldsson fór á hausinn með flugfélag sitt Sterling. Það galopnaði dyrnar fyrir Norwegian sem síðan er orðið þriðja stærsta lággjaldaflugfélag heims og það sem besta fær einkunn fyrir þjónustu.
Sannast hið fornkveðna að ekki er allt svo með öllu illt að ekki boði eitthvað gott. Þakkir til Pálma frá ritstjórn Fararheill.
Hvetjum fólk til að lesa viðtal túrista hér. Flott stöff.







