Það er orðin regla hjá mörgum að strengja sérstök áramótaheit og oft með það að markmiði að bæta heilsubrest ellegar koma í veg fyrir það. Hætta að reykja, nota líkamsræktar- og sundkortin, kaupa vítamínpillur, skokka við hvert tækifæri og svo framvegis og svo framvegis.

Þess vegna ætti áramótaheitið að vera fleiri ferðalög...

Þess vegna ætti áramótaheitið að vera fleiri ferðalög…

Það vill hins vegar oft gleymast að heilsa og hamingja er ekki sami hlutur. Það getur vart verið eftirsóknarvert að vera í toppformi líkamlega en í henglum hið innra. Flott í ræktinni en ástleysi og depurð að drepa þig þegar enginn sér til.

Lítill vafi getur leikið á að lífið er ekki mjög auðvelt mörgum Íslendingnum þrátt fyrir að margir feli það til dauðadags. Heimsmeistarar í notkun geðlyfja, næstum heimsmeistarar í offitu, á heimsmælikvarða í fíkniefnaneyslu og skilnaðartíðni. Efsta sætið yfir börn fædd utan hjónabands og meðal toppþjóða á listum yfir flesta einstæða foreldra. Framhjáhald er þjóðaríþrótt fyrir utan auðvitað að við vinnum miklu, miklu lengur en allar nágrannaþjóðir en fyrir miklu lægri laun. Og allt þetta er aðeins það sem er mælanlegt. Æði margt sem gefur lífinu gildi fellur ekki undir neina mælanlega kvarða.

Það er hins vegar einn hlutur, og aðeins einn hlutur, sem bætir bæði heilsu og eykur hamingju. Ferðalög. Eða man einhver eftir að hafa komið dapur úr ferðalagi? Hugsaðu málið. Flest okkar, ef ekki öll, dauðsjá eftir að hafa ekki verið lengur á ferðalagi þegar að heimfarardegi er komið.

Þess vegna ættir þú, eins og ritstjórn Fararheill, að strengja þess heit að ferðast meira á næsta ári en þú gerðir á því síðasta. Við skulum hundar heita öllsömul ef það færir ekki dýpra og innilegra bros á varir og kannski bullandi gleði í hjarta þegar kemur að næstu áramótum.

Ritstjórn sendir lesendum sínum góðar kveðjur og þökkum samfylgdina árið 2014. Í blálokin sendum við ykkur á hugarflug með einu allra besta ferðamyndbandi sem við fundum á árinu.

Út með þig 🙂