Flugleitarvefurinn Dohop hefur nú fengið andlitslyftingu svo um munar og þar nú hægt að leita og finna með mun auðveldari og skemmtilegri hætti en hingað til.

Þig vantar helgarferð, Þá getur Dohop nú reynst happadrjúgt til að finna besta tímann og lægsta verðið á örskotsstundu. Skjáskot

Þig vantar helgarferð, Þá getur Dohop nú reynst happadrjúgt til að finna besta tímann og lægsta verðið á örskotsstundu. Skjáskot

Þrátt fyrir allar tækninýjungar, eða kannski vegna þeirra allra, er hreint ekkert alltaf auðvelt að finna upplýsingar á netinu. Þar er svo margt villandi eða jafnvel rangt líka að jafnvel ítarleit skilar litlu í hús.

Líttu á meðfylgjandi skjáskot af vef Dohop. Nú er þar möguleiki, langi fólk í skemmri skottúr, að finna á augabragði hvenær vænlegast er að skjótast af stað. Hægt að velja lengd ferðar, hámarksverð ferðar og jafnvel hvaða vikudag fólk vill af stað.

Á myndinni má til dæmis sjá verð á skemmri ferð til Hamborgar í Þýskalandi á aðeins 18.928 krónur. Og þú sem vissir ekki að það væri beint flug til Hamborgar frá Keflavík 🙂

Aldeilis fínt verð fyrir flug fram og aftur. Fari fólk þar inn má  sjá að þetta verð gildir fyrir nokkra daga strax í byrjun júní. Þar má líka sjá önnur lægstu fargjöld fram eftir sumri og þar með taka eftir að þetta lægsta verð er hartnær helmingi lægra verð en þú þarft að greiða ef þú ætlar á öðrum tímum í sumar.

Auðvitað er ekkert nýtt að sjá meðalverð á ferðum hingað og þangað en munurinn sá að nú færðu upplýsingar á augabragði og þarft ekkert að eyða tíma í leit eins og áður var.

Gott mál fyrir okkur neytendur.