Tíðindi

Mikil fækkun áfangastaða Iceland Express

  26/10/2011október 25th, 2021No Comments

Séu forsjálir Íslendingar að velta fyrir sér að kaupa utanlandsferð næsta árs núna er hætt við að fólk komi mikið til að lokuðum dyrum hjá farandsalanum Iceland Express. Af 24 auglýstum áfangastöðum félagsins þessa stundina er aðeins hægt að bóka framyfir næstu áramót til fimm staða af þessum 24.

Þeim hefur því fækkað verulega áfangastöðunum sem félagið flýgur til en ritstjórn Fararheill er ekki kunnugt um eitt einasta flugfélag annað þar sem ekki er í boði að kaupa ferðir lengra en tvo mánuði fram í tímann.

En það er reyndin. Af þeim stöðum sem flugfélagið býður ferðir til á heimasíðu sinni er einfaldlega ekki í boði að kaupa ferðir á næsta ári nema til Osló, London, New York, Kaupmannahafnar og Berlínar. Meira að segja í þessum tilfellum er takmarkað hversu langt fram í tímann hægt er að bóka. Þannig eru Berlínarferðir aðeins í boði út maí 2012 en ferðir til hinna fjögurra er hægt að bóka fram í ágúst.

Þessu til viðbótar eru ferðir til Varsjár, Kraká, Billund og Alicante einungis í boði fram í desember á þessu ári. Enginn kemst því með Iceland Express í Spánarsól þann 5. janúar ef áhugi er á því.

Til að bæta gráu ofan á svart eru enn á heimasíðu félagsins að finna ferðir til Winnipeg, Zurich, París og Boston en slíkar ferðir hafa ekki verið í boði síðan í september síðastliðnum.