N ákvæmlega ekkert er sérstaklega heillandi við munkaklaustrið St. Sixus í Westvleteren í Belgíu. Auðvelt er að aka þar framhjá án þess að nokkuð forvitnilegt beri fyrir augu og í raun ekkert auðvelt að sjá að þar hefst við fjöldi munka sem gera fátt annað en lifa spart og leita guðs.

Á Ebay og víðar er hægt að kaupa kassa af vinsælasta mjöði munkanna í St.Sixus fyrir tugmilljónir króna.

Á Ebay og víðar er hægt að kaupa kassa af vinsælasta mjöði munkanna í St.Sixus fyrir tugmilljónir króna.

Það er hins vegar þetta „fátt annað“ sem er lykilorðið því þetta lítilmótlega klaustur er mekka bjóráhugamanna um víða veröld. Ástæðan að þar er bruggaður það sem margir telja vera besta bjór í heimi.

Mjöðurinn atarna ber hið þjála nafn Westvleteren 12 og er sterkur dökkur bjór sem framleiddur hefur verið hér í klaustrinu í aldaraðir auk annarra bjóra sem þekktir eru og meðal annars seldir hérlendis um Trappist merkinu.

Trappist er bjór númer eitt, tvö og þrjú í þessu litla landi sem er helsti bjórframleiðandi heims. Reiknast mönnum til að einn af hverjum fimm bjórum sem drukknir eru í veröldinni komi frá Belgíu.

Og áhuginn á munkabjórnum er slíkur að mjög er þrengt að öllum þeim er kaupa vilja mjöðinn góða. Þannig er að finna á heimasíðu munkanna ítarlegar upplýsingur um hvernig fólk eigi að bera sig að við kaupin.

Fyrst og fremst þarf að panta mjöðinn en það fer eftir árstíma hvenær slíkt er hægt fyrir hvern þann bjór sem munkarnir brugga. Sé tíminn réttur opna menn fyrir símapantanir en takmarkað er hversu mikið hver og einn getur keypt af hverjum bjór fyrir sig. Þá fyrst fást upplýsingar um hvenær bjórinn skuli sóttur en hver sem nær sér í þá tvo kassa sem eru hámarkið fyrir hvern kaupanda þarf að lofa upp á æru sína að bjórinn verði ekki seldur til þriðja aðila. Þá þýðir heldur ekki fyrir sama aðila að panta ítrekað. Tveir mánuðir þurfa að líða milli þess sem einn og sami aðili fær að kaupa annan skammt.

En holdið er veikt og hugur margra líka og því brjóta allnokkrir reglu munkanna að selja ekki mjöðinn áfram. Reglulega má finna kassa af  Trappist öli í boði á vefmiðlum á borð við eBay þar sem þeir seljast vitaskuld dýru verði. Þannig er ekki óalgengt að kassinn af ölinu góða, sem kostar 4.600 krónur íslenskar í klaustrinu, seljist á uppboðsvefum á hundrað þúsund krónur.

Fyrir þá sem þjást illa af bjórbakteríu er því óvitlaust að bregða sér bæjarleið til Belgíu. Þangað flýgur Icelandair og frá Brussel er rösk klukkustund að St. Sixus klaustrinu. Heimasíðan hér fyrir áhugasama.