Innan tíðar bætast farangursgjöld ofan á verð ferða hjá Iceland Express eins og þegar er raunin hjá Wow Air. Ekki er ljóst á þessari stundu hversu há þau verða hjá þeim fyrrnefndu en ein einasta taska undir 20 kílóum hjá Wow kostar allt að 4.500 krónum. Er það hrein viðbót við fargjaldið og búast má við að gjöld Iceland Express verði á svipuðum nótum.

Blár 63% og grænn 37%. Meirihluti svarenda í nýrri könnun Fararheill segja sérstakt farangursgjald á allar töskur ferðalanga óeðlilegt skref flugfélaganna
Slík gjöld eru auðvitað ætluð til að hámarka hagnað og spara má verulega með léttari vélum í millilandaflugi. Eldsneyti er jú milli 40 og 60 prósent af kostnaði hvers flugfélags hin síðari ár og léttari vélar eyða jú mun minna.
En þeir lesendur Fararheill sem þátt tóku í könnun vegna þessa eru á þeirri skoðun að slík farangursgjöld séu af hinu verra.
Af 94 sem greiddu atkvæði segja 63 prósent gjaldið vera óeðlilegt meðan 37 prósent telja hið gagnstæða.
Ekki kemur á óvart að almenningur sé mótfallinn hærri gjöldum. Öllu frekar kemur á óvart hversu margir telja gjaldtökuna eðlilega.






